05. apríl 2007 klukkan 21:30
Soffia 'Osk Guðmundsdóttir
01. febrúar 2007 klukkan 04:28
Jæja þá er maður að fara úr sveitalífinu yfir í stórborgina..
er bæði kvíði og tilhlökkun, en ég vona mest af öllu að stelpurnar verði ekki alveg brjálaðar út af þessum breytingum öllum
en við mæðgurnar erum sem sagt að fara í flug á morgun.
en er annars að fara að hitta gamla staffið sem ég var að vinna með á gauknum og hlakkar mér frekar mikið til, en verst að vala mín er búin að vera ekkað lasin og er komin á sýklalyf og ekki víst að hún komist en ég vona það besta.. er bara eginlega ekki hægt að fara án hennar:(
en engu að síður þá verður stuð og gaman að hittast... svo Vala þú verður að vera dugleg að hvíla þig því þú verður að koma!!!!!
en svo er það bara að fara að drífa sig í því að taka sig á í nýársheitinu,
sem sagt að fara í ræktina og endanlega ná af sér þessum meðgöngukílóum..!!
en ætla að enda þetta á henni Demi vinkonu minni
er hægt að líta ekkað betur út 45 ára gömul.......?

Soffia 'Osk Guðmundsdóttir
23. janúar 2007 klukkan 21:44
Jæja nú líður tíminn svo hratt og janúar bara að verða búin.. og mér finnst ég eiga eftir að gera svo mikið, en þetta gerist svona hægt og bítandi
maður er bara svo hræddur við að taka næsta skref en markmiðið er að standa á eigin fótum og það skal takast þetta verður ekki auðvelt en það SKAL takast.
ég er allavega búin að taka ákvörðun um að gerast dagmamma og það er skref fyrir sig.. er búin að skrá mig á námskeið sem byrjar um miðjan feb og svo reikna ég með því að byrja að vinna í mars, en það er takmarkið, þar að segja ef maður finnur íbúð sem vonanadi gerist sem fyrst...
en við höfðum okkur í það að segja upp leikskólaplássinu hennar Báru og þá á hún bara viku eftir og verður örugglega erfit fyrir hana að kveðja þar.. en vonandi verður hún bara ánægð með nýja leikskólann sem hún fer á
við dömurnar eigum eftir að plumma okkur hef enga trú á öðru
bæ í bili Soffía
Soffia 'Osk Guðmundsdóttir
09. janúar 2007 klukkan 18:49
Jæj gott fólk..
ég vona að fyrstu dagarnir á nýju ári hafi verið góðir við ykkur, ég vildi allavega að það hafi verið þannig hjá mér.. ég sem var búin að heita því að nýja árið myndi leika við mig, en maður fær víst ekki alltaf það sem maður vill...
En nóg af væli.. ég þarf að fara að vesenast í alskonar hlutum víst ég er að fara að flytja suður og ér ég pínu kvíðin hringja þangað, fara þangað tala við þennan og hinn.... en maður verður víst að gera þetta allt saman ef við stelpurnar eigum að lifa þetta af..þannig að ef það er einhver sem er að skoða þetta og veit um góða 3 herbergja íbúð helst í seljahverfinu. viltu þá plís láta mig vita.
En annars þá er bara búið að snjóa hérna og var ég frekar fúl var alveg sátt við að hafa allt autt það er alveg minn stíll og tala þá ekki um að geta farið út í bíl á inniskónum
en ég ætla að enda þetta á henni Britney Spears, hrikaleg mynd af henni þetta var manneskja sem manni fannst svo endalaust falleg og alltaf svo flott en núna klæðir hún sig verr en Björk og lítur út eins og drusla!!! hvað gerðist?

Soffia 'Osk Guðmundsdóttir
03. janúar 2007 klukkan 04:55
Soffia 'Osk Guðmundsdóttir
15. desember 2006 klukkan 03:37
Þetta er litla shilo pitt/jolie og váá hvað hún er lík pabba sínum, bara varð að setja hana inn....
Soffia 'Osk Guðmundsdóttir
14. desember 2006 klukkan 20:47
Þetta er nú bara ekki að verða fyndið, það bara snjóar og snjóar...! hann var rétt búin að hreinsa sig já nei þá byrjar bara að snjóa aftur, er sko alveg að verða komin með nóg af þessu. Mér verður hugsað til önnu vinkonu sem er að fara til kanarí um áramótin og ég öfunda hana ekkert lítið

en maður verður víst að þola þetta,
þetta er víst svona sem þetta er á íslandi,
En er farið að hlakka ekkert smá til jólana og þá sérstaklega því við erum að fara norður til mömmu og krakkana og þá fyrst byrjar jólastuðið

Bára er að fá í fyrsta skipti í skóinn og held ég að hún skilji þetta ekki alveg, sérstaklega þegar ég er að segja henni að ef hún sé ekki góð að þá sjái jólasveinnin það og gefi henni ekki í skóinn.. hún segir þá.. ég sé ekki jólasveinin og þar af leiðandi heldur hún að hún geti verið óþekk því hún taki ekki eftir neinum sveinka og skilur ekkert hvað ég er að rugla, en hún er aftur á móti voða glöð á morgnana þegar hún sér hvað hún fær.. en barnið er svo langt frá því að vera sælkeri því sveinki gaf henni súkkulaði jólasvein í morgun sem flest born myndu háma í sig, en mín smakkaði og fannst þetta ekkert til að hrópa húrra fyrir

en ég er viss um að ef sveinki gæfi henni tómat í skóinn að þá væri hún ekki lengi að klára hann. það er allavega þannig á þessu heimilli að það má ekki vera til þá er hún búin að klára hann
hún er yndisleg litla hollustan mín

áfram í jólastuði......bæjó....
Soffia 'Osk Guðmundsdóttir
11. desember 2006 klukkan 06:24
Halló allir aftur eftir smá pásu!!
Jæja var bara að fara að gefast upp á þessari síðu alltaf ekkað að en það er kannski engin afsökun en.... allt að gerast, bara korter í jólin eða svo og er búin að sitja sveitt að búa ti jólakort og er það bara að hafast hjá mér held ég.. nebblea ákvað að vera frekar snemma að þessu í ár því ég er yfirleitt alltaf á síðasta snúning með þetta allt saman
Fór í magnaða ferð til Reykjavíkur um síðustu helgi og var það alger snilld, fór á tónleika með rockstar liðinu og var ógeðslega gaman, en var gjörsamlega búin á því þegar þeir voru búnir því við vinkonurnar höfðum nebblea mikið fyrir því að troða okkur fremst en var það algjörlega þess virði

allavega að sjá Tobbi hotty svona upclose.. en það var ekki auðvelt því það voru 2 fertugar breddur sem ætluðu ekki að hleipa okkur frammhjá sér og urðu gjörsamlega geðveikar þegar troðningurin byrjaði og hélt ég að ég myndi pissa á mig þegar þær voru að rífa sig þær urðu svo snælduvitlausar

en þetta var stutt en mögnuð ferð fór bara með Emmu með mér og náði ég að kaupa flestar jólagjafir og var frekar ánægð með það því það er ekki eins og það sé brjálað úrval hérna á vopnafirði hehe
en nú held ég að þetta sé orðið gott í bili
allir að vera í jólaskapi því jólin eru að koma
Bæ í bili Soffía
Soffia 'Osk Guðmundsdóttir
31. október 2006 klukkan 06:37
Jæja Þá er 2 vikna ferðalag að baki...
frábært ferðalag og keyrði maður heim í snjóinn:( vorum fyrir sunnan í viku og það var æðislegt, fór út að borða með stelpunum á afmælisdaginn og fórum við á madonu og var ekkert smá góður matur sem maður fékk þar, ég held svei mér þá að ég hafi verið södd í 2 daga á eftir;) Svava og Binni voru svo góð að hísa okkur meðan við vorum fyrir sunnan og það var æði, sérstaklega hjá Báru og Emilíu sem voru eins og litlar kellingar í mömmó mest allan tíman;) en svo á leiðini til baka kom ég við hjá mömmu og ætlaði að vera þar í 2-3 daga, en svo daginn eftir að við komum þurfti endilega að fara að snjóa og það snjóaði sko... og ég sem er orðin svo bílhrædd... og þorði ekki að keyra ein með stelpurnar heim þannig að við vorum í viku hjá kellu og mannsi koma og náði í okkur þessi elska:) en það var samt gaman að hafa verið svona lengi því kolla mín kom um helgina og var að halda uppá afmælið hjá litlu sinni og fórum við stelpurna í afmælisveislu og svo fóru mömmurnar á djammið um kvöldið og var ekkert smá gaman.. en viðurkenni það að maður varð svoldið ölvaður.. En nú er margt framundan og er mannsi að fara suður í næstu viku og er að fara að byrja að vinna og við stelpurnar verðum eftir í einhvern tíma. Vonandi verður þá komin einhver íbúð til leigu sem við sættum okkur við, þetta er náttlega ekkert eðlilegt verðið á þessu.......!!! þannig að maður vonar bara það besta:)
þangað til næst.....Soffía.....:)
Soffia 'Osk Guðmundsdóttir
13. október 2006 klukkan 20:36
Hæ hæ allir:)
þá er best að blogga ekkað smá... maður er nú að drepast úr leiðindum.. en maður liggur eins og ég sagði áður inná leigulistanum og reynir að grípa íbúð þegar það kemur ekkað sem manni líst á en það er sko ekki búið að vera mikið af því uppá síðkastið bara eintóm herbergi á 50 kall eða ekkað, þetta er náttúrulega bilun
Við erum líklegast að fara suður eftir helgi því kallinn er að fara á lyftaranámskeið í nokkra daga og ákváðum við bara að fara öll, kella á líka afmæli á þriðjudaginn og ég vænti þess að kallinn komi mér ekkað á óvart
en allaveg hlakka pínu til að hitta fólk og svona hehe.. guð hvað maður er sorglegur
en þarf að fara að sinna litlu músini minni, hafið það gott á meðan
kveðja Soffía
Soffia 'Osk Guðmundsdóttir